fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Carrick breytir reglu sem Ten Hag og Amorim voru báðir með

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick hefur gert breytingar á æfingaplani hjá Manchester United frá því hann tók við sem aðalþjálfari.

Leikmenn fá nú frí daginn eftir leiki, sem er breyting frá tíð Erik ten Hag og Ruben Amorim. Áður var lögð áhersla á endurheimtaræfingar daginn eftir leiki og þeir sem spiluðu minna en 45 mínútur fóru í fulla æfingu.

Undir stjórn Carrick fá leikmenn hvíld daginn eftir leik, en endurheimt fer fram þegar hópurinn mætir næst á æfingasvæðið í Carrington. Þá hefur hann stytt æfingadagana en aukið ákefð æfinga.

Meiri áhersla er einnig lögð á einstaklingsmiðaða vinnu. Fyrrum varnarmennirnir Jonathan Woodgate og Jonny Evans hafa til að mynda unnið sérstaklega með miðvörðum liðsins að tækni og varnarleik.

Carrick virðist þannig markvisst móta sitt eigið skipulag og setja sinn svip á starfsemina á Old Trafford.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið