fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
433Sport

Kallar Fabregas barn sem er fífl eftir gærkvöldið

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil hiti skapaðist þegar AC Milan og Como gerðu 1-1 jafntefli í ítölsku úrvalsdeildinni á miðvikudagskvöld.

Eftir leikinn lét Massimiliano Allegri, þjálfari Milan, þung orð falla í garð kollega síns, Cesc Fabregas, og kallaði hann meðal annars „fífl“ í kjölfar atviks sem átti sér stað undir lok leiksins.

Þjálfararnir höfðu verið vinalegir fyrir leik, en allt sauð upp úr á 80. mínútu þegar Fabregas yfirgaf tæknisvæðið og togaði í treyju Alexis Saelemaekers til að stöðva skyndisókn Milan.

Allegri brást ókvæða við, fékk rautt spjald fyrir mótmæli, á meðan Fabregas slapp með gult.

Eftir leik bað Fabregas afsökunar á hegðun sinni og viðurkenndi að hafa farið yfir strikið. Hann sagði að slíkt ætti ekki að gerast, sérstaklega hjá þjálfara, og vonaðist til að atvikið myndi ekki endurtaka sig.

Þegar þjálfararnir mættust aftur eftir leik lét Allegri reiði sína í ljós og kallaði Fabregas „barn sem varð þjálfari í gær“. Hann bætti síðar við að næst myndi hann „Tækla þann sem hlypi framhjá sér“.

Þetta er ekki í fyrsta skipti á stuttum tíma sem Fabregas er í sviðsljósinu. Um helgina gagnrýndi hann eigin leikmann, Alvaro Morata, harðlega eftir tap gegn Fiorentina og sagði að þeir sem ráða ekki við tilfinningar sínar ættu að „finna sér aðra íþrótt“.

Como hefur þó átt gott tímabil og er í baráttu um Evrópusæti undir stjórn Fabregas.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Magnaðir Norðmenn með frábæran sigur – Dramatík í Madríd

Magnaðir Norðmenn með frábæran sigur – Dramatík í Madríd
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hörmuleg frammistaða Arsenal sem tapaði aftur stigum

Hörmuleg frammistaða Arsenal sem tapaði aftur stigum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gordon magnaður í stórsigri Newcastle

Gordon magnaður í stórsigri Newcastle
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þrjú félög í London vilja varnarmann Real Madrid frítt í sumar

Þrjú félög í London vilja varnarmann Real Madrid frítt í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vill fara til Barcelona en í Madríd vilja menn gera nýjan samning við hann

Vill fara til Barcelona en í Madríd vilja menn gera nýjan samning við hann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sverrir skrifar undir í Hafnarfirði

Sverrir skrifar undir í Hafnarfirði