fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
433Sport

Eftirsjá hjá Manchester United

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn Manchester United eru sagðir orðnir svekktir með lánssamninginn sem félagið gerði við Barcelona um Marcus Rashford.

Rashford er á láni hjá Börsungum og er kaupákvæði í samningnum upp á 26 milljónir punda. Góð frammistaða Englendingsins í Katalóníu hefur þó vakið áhyggjur hjá United, sem telja markaðsvirði hans nú nær 50 milljónum punda.

Sóknarmaðurinn hefur skorað 10 mörk og lagt upp önnur 10 í 34 leikjum undir stjórn Hansi Flick, þrátt fyrir að vera ekki alltaf í byrjunarliði. Meiðsli Raphinha hafa gefið honum stærra hlutverk og Flick hefur hrósað hugarfari hans opinberlega.

Barcelona vill lækka verðið, en United neitar að gefa afslátt. Þá er áhugi annarra félaga sagður til staðar. Meðeigandi United, Jim Ratcliffe, ku enn staðráðinn í að selja leikmanninn og létta á launakostnaði.

Rashford hefur sjálfur lýst yfir vilja til að vera áfram á Spáni, en fjárhagsstaða Barcelona gæti flækt málið þegar ákvörðun verður tekin í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gordon magnaður í stórsigri Newcastle

Gordon magnaður í stórsigri Newcastle
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þrjú félög í London vilja varnarmann Real Madrid frítt í sumar

Þrjú félög í London vilja varnarmann Real Madrid frítt í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kemur ekki til greina hjá Liverpool að selja hann

Kemur ekki til greina hjá Liverpool að selja hann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fúll og pirraður hjá Newcastle og vill fara strax í sumar

Fúll og pirraður hjá Newcastle og vill fara strax í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Barcelona vill lækka verðið en United stendur fast á sínu

Barcelona vill lækka verðið en United stendur fast á sínu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Líklegt að Benitez verði rekinn – Sverrir gæti þá fengið fyrrum miðjumann Liverpool sem þjálfara

Líklegt að Benitez verði rekinn – Sverrir gæti þá fengið fyrrum miðjumann Liverpool sem þjálfara
433Sport
Í gær

Segir frá því hvað gekk á áður en allt sprakk í loft upp hjá Ronaldo

Segir frá því hvað gekk á áður en allt sprakk í loft upp hjá Ronaldo
433Sport
Í gær

Real Madrid tilbúið að taka upp stóru seðlana í sumar

Real Madrid tilbúið að taka upp stóru seðlana í sumar