fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Arteta tjáir sig um vaxandi áhyggjur stuðningsmanna af Eze

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, útskýrði ákvörðun sína að taka Eberechi Eze af velli í hálfleik og setja Martin Ødegaard inn á í jafntefli liðsins gegn Brentford.

Eze átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik og var aðeins með 17 snertingar á boltann. Þegar Ødegaard kom inn á í seinni hálfleik jókst flæði í sóknarleik Arsenal og liðið varð beinskeyttara.

„Vegna þess hvernig þeir pressuðu okkur,“ sagði Arteta um skiptinguna.

„Við þurftum aðra tegund af leikmanni til að skapa meiri vandamál fyrir þá á ákveðnum svæðum. Mér fannst hann koma mjög vel inn í leikinn og liðið fór upp um gír. Við urðum hættulegri á þeim svæðum sem við vildum sækja á, og þess vegna var þessi ákvörðun tekin.“

Frammistaða Eze þýðir að hann er enn án marks eða stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni síðan hann skoraði þrennu gegn Tottenham 23. nóvember. Síðan þá hefur hann aðeins átt eina stoðsendingu í öllum keppnum, gegn Bayern München þremur dögum eftir Tottenham-leikinn.

Arteta bað þó um þolinmæði. „Hann átti sín augnablik. Það er aldrei auðvelt að koma í nýtt lið. Þegar þú spilar gegn liði sem spilar svona fer boltinn oft ekki á jörðinni og þú þarft stöðugt að brjóta upp leikinn. Fyrir skapandi sóknarleikmenn er það erfiðara.“

Arteta telur að Eze muni vaxa inn í hlutverk sitt með tíma og trausti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

KA staðfestir komu Djuric

KA staðfestir komu Djuric
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Courtois hringdi í Kinsky og segir frá því sem fór þeirra á milli

Courtois hringdi í Kinsky og segir frá því sem fór þeirra á milli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield