fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Bíða eftir grænu ljósi frá Sádunum

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Moussa Diaby er líklega á leið aftur til Evrópu, nánar til tekið til ítalska stórliðsins Inter. Inter er nú í viðræðum við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu um að ganga frá samningi.

Diaby gekk til liðs við Al-Ittihad sumarið 2024 frá Aston Villa og hefur staðið sig afar vel, er með átta mörk og 27 stoðsendingar í 52 leikjum í öllum keppnum. Áhugi Inter hefur verið staðfestur af forseta félagsins, Giuseppe Marotta, sem viðurkennir þó að viðræðurnar séu flóknar.

Samkvæmt Fabrizio Romano hefur Inter þegar náð samkomulagi við Diaby um persónuleg kjör. Nú snýst málið um að sannfæra Al-Ittihad, en Inter er sagt hafa lagt fram lánstilboð með kauprétt að andvirði 35 milljóna evra.

Diaby er samningsbundinn Al-Ittihad til ársins 2029 og hefur leikið 11 landsleiki fyrir Frakkland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah