fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Ólgan eykst í London – Ætla sér að fara ódýra leið til að fylla skarð stjörnunnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 24. janúar 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Crystal Palace vinnur nú að því að finna staðgengil fyrir Marc Guehi, sem gekk til liðs við Manchester City í síðustu viku fyrir rúmlega 20 milljónir punda. Það er þó talið að félagið finni skammtímalausn og spari aurinn þar til í sumar.

Það er mikil ólga hjá Palace. Stjórinn Oliver Glasner fer í sumar þegar samningur hans rennur út, en hann er verulega ósáttur við yfirmenn sína.

Þá er Jean-Philippe Mateta talinn á útleið einnig. Telur hann metnaðarleysi einkenna ákvarðanir félagsins. Allt kemur þetta í kjölfar þess að Palace seldi sína skærustu stjörnu, Eberechi Eze, til Arsenak í sumar.

Félagið keypti Brenann Johnson þó fyrr í þessum mánuði frá Tottenham. Kostaði hann 35 milljónir punda og varð dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Stuðningsmenn eru þó nokkuð pirraðir á stöðunni og má búast við að pirringurinn verði einn meiri ef skarð fyrirliðans Guehi verður ekki fyllt almennilega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað