fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

„Guð minn góður, við þurfum eiginlega að fara að tala um eitthvað annað því mig langar að hoppa upp í næstu vél aftur“

433
Laugardaginn 24. janúar 2026 12:30

Gummi Tóta og Guðbjörg Ósk. eiginkona hans. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson, atvinnu- og landsliðsmaður til margra ára og nýjasti leikmaður ÍA, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Guðmundur lék með OFI Crete í Grikklandi frá 2022 til 2024. Sá tími var einn sá allra besti utan vallar.

„Þetta var geðveikur tími. Okkur langar svolítið að vera eitthvað á Krít í framtíðinni. Dóttir okkar fæðist náttúrulega þarna,“ sagði Guðmundur.

video
play-sharp-fill

„Fótboltinn gekk bara vel, vorum um miðja deild sem er nokkurn veginn það sem er vænst til af liðinu. Það voru kannski full margir komnir til að vera á ströndinni og svolítið kaos í fótboltanum, klúbburinn ekki sérlega vel rekinn. En við bjuggum á Krít og vorum svolítið blinduð af því alla leið.

Fótboltinn er góður þarna en það vantar aðeins upp á æfingakúltur og þeir eru svolítið góðir við sig að einhverju leyti. Það var áhugavert hvernig við æfðum og fyrstu þrír leikir í deildinni voru svolítið nýttir í að koma liðinu í stand, það var ekkert erfitt undirbúningstímabil eða neitt svoleiðis.“

Sem fyrr segir hugsar Guðmundur afar hlýtt til tímans með fjölskyldunni á Krít.

„Að búa þarna var ótrúlegt. Við eigum svo margar góðar minningar, gott fólk og þetta er öðruvísi kúltúr en í Bandaríkjunum og Skandinavíu, mikil ró yfir öllum. Veðurfarið spilar líka inn í. Þetta var algjörlega frábær tími. Við vorum í Heraklion fyrra árið en færðum okkur svo að ströndinni. Guð minn góður við þurfum eiginlega að fara að tala um eitthvað annað því mig langar að hoppa upp í næstu vél aftur,“ sagði hann og hló.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað
Hide picture