fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
433Sport

Niðurskurður á Sýn nær inn í þáttagerð um enska boltann – Varsjáinni kippt af dagskrá

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þátturinn Varsjáin á Sýn Sport hefur verið tekinn af dagskrá og ekki verið til sýningar frá því um miðjan desember. Þátturinn var í tengslum við enska boltann og fór af stað í ágúst þegar enska úrvalsdeildin fór af stað hjá Sýn Sport.

Stefán Árni Pálsson og Albert Brynjar Ingason stýrðu þættinum þar sem farið var yfir enska boltann á léttum nótum, oftar en ekki voru gamlir tímar rifjaðir upp og góður gestur var með þeim. Þátturinn var sýndur vikulega.

Sýn Sport tók við enska boltanum síðasta haust og kynnti mjög metnaðarfulla dagskrá í kringum úrvalsdeildina, nú virðist eitthvað eiga að draga í land með dagskrárgerð í kringum þessa vinsælustu íþróttadeild í heimi.

Nokkur niðurskurður hefur verið innan raða Sýn undanfarna mánuði og líklegt að það að taka Varsjána af dagskrá tengist því en þátturinn naut nokkurra vinsælda á meðal áskrifenda. Ekki hefur fengist svar frá forsvarsmönnum Sýnar um málið.

Stefán Árni og Albert hafa verið áberandi í dagskrá Sýnar á síðustu árum og munu halda því áfram, Stefán Árni er lykilmaður í öllu tengdum körfubolta hjá Sýn auk þess að stýra þáttum í kringum íslenska og enska boltann.  Albert heldur áfram að vera í kringum enska boltann, auk þess að vera í stóru hlutverki í Meistaradeild og Bestu deild karla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Helga Jean var ekki skemmt – „Eitt og sér mjög magnað að vera með svona mikið egó“

Helga Jean var ekki skemmt – „Eitt og sér mjög magnað að vera með svona mikið egó“
433Sport
Í gær

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar
433Sport
Í gær

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres
433Sport
Í gær

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val
433Sport
Í gær

Vonast til að halda góðu gengi áfram svo Frank komist loksins í klippingu

Vonast til að halda góðu gengi áfram svo Frank komist loksins í klippingu
433Sport
Í gær

Fór verulega í taugarnar á Hjálmari – „Hversu vitlaus geturðu verið?“

Fór verulega í taugarnar á Hjálmari – „Hversu vitlaus geturðu verið?“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir tímabilið skipta minna máli vegna andláts Jota

Segir tímabilið skipta minna máli vegna andláts Jota
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rosalegar launakröfur leikmanns Liverpool

Rosalegar launakröfur leikmanns Liverpool