fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
433Sport

Lykilmaður hættir hjá Arsenal

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 12. janúar 2026 12:30

Mertesacker og Arsene Wenger á sínum tíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur staðfest að Per Mertesacker muni láta af störfum hjá félaginu í sumar. Þjóðverjinn, sem lék 221 leik fyrir Arsenal á árunum 2011–2018, hefur verið yfirmaður akademíunnar síðan hann lagði skóna á hilluna, en mun nú hverfa frá félaginu í lok tímabils.

Mertesacker tók við starfinu árið 2018 og hefur haft yfirumsjón með uppbyggingu yngri flokka Arsenal, þar sem áhersla hefur verið lögð á að þróa unga leikmenn og undirbúa þá fyrir knattspyrnu á hæsta stigi. Undir hans stjórn hafa fjölmargir leikmenn fengið tækifæri með aðalliðinu.

„Arsenal er og verður alltaf mjög sérstakur klúbbur fyrir mig, þannig að þetta var erfið ákvörðun. Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér var sýnt þegar ég fór beint úr því að vera leikmaður í að taka við sem yfirmaður akademíunnar. Nú er kominn tími til að halda áfram, prófa eitthvað nýtt og reyna enn frekar á sjálfan mig,“ er haft eftir Mertesacker í tilkynningu félagsins.

Hann segist ætla að einbeita sér að því að ljúka tímabilinu af fullum krafti og tryggja eftirmanni sínum góðan grundvöll til að halda góðu starfi áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær