fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
433Sport

Linta tekur við af Þorláki í Eyjum

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 12. janúar 2026 10:11

Aleksandar Linta, t.v.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Serbinn Aleksandar Linta hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV.

Skrifar hann undir þriggja ára samning við Eyjamenn, sem héldu sér þægilega upp í Bestu deildinni sem nýliði undir stjórn Þorláks Árnasonar í fyrra.

Linta hefur á ferlinum bæði þjálfað og spilað á Íslandi og þekkir boltann hér því vel. Hefur hann einnig þjálfað víða annars staðar, til að mynda hjá Olimpija Ljubljana í Slóveníu.

Tilkynning ÍBV
Serbneski knattspyrnuþjálfarinn Aleksandar Linta hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV. Hann mun verða aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu.

Linta sem er 50 ára á langan leikmannaferil á Íslandi þar sem hann lék í öllum fjórum deildum landsins á sínum tíma sem leikmaður frá árinu 1997 til 2013. Flesta leikina lék hann í 1. deild en þá einnig þrjú tímabil í efstu deild með ÍA og Þór.

Hann hóf þjálfaraferil sinn á Grundarfirði árið 2012 en hann var þjálfari þar í tvö ár. Hann var aðstoðarþjálfari hjá slóvenska félaginu NK Olimpija Ljubljana og einnig aðalþjálfari þar í stuttan tíma 2018 þar sem Olimpija komst örugglega áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Leið Linta lá síðan til Kasakstan þar sem hann var aðstoðarþjálfari hjá fimmföldum landsmeisturum FC Irtysh Pavlodar, eftir það fékk hann starf sem aðalþjálfari hjá FK Radnicki 1923 en þar var hann frá 2020 til 2021. Árið 2021 tók hann við FK Vozdovac en nú yfirgefur hann starf í unglingaliðum hjá Rauðu Stjörnunni til að taka við ÍBV.

Knattspyrnuráð býður Aleksandar velkominn til félagsins og hlakkar til samstarfsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær