fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
433Sport

Carrick fær meðmæli frá Cristiano Ronaldo

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 12. janúar 2026 19:00

Gæti Carrick tekið við til framtíðar?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick getur státað af afar sterkri meðmælum frá Cristiano Ronaldo sem gætu styrkt stöðu hans gagnvart stjórnendum Manchester United.

Carrick, sem er goðsögn hjá United, er einn þeirra sem koma til greina sem bráðabirgðastjóri félagsins út yfirstandandi tímabil. Ole Gunnar Solskjær er einnig í umræðunni, en samkvæmt fréttum er Carrick að fá aukinn stuðning innan veggja Old Trafford.

Carrick lauk þriggja ára veru sinni sem knattspyrnustjóri Middlesbrough síðasta sumar. Það var hans fyrsta fullt starf sem aðalþjálfari, en áður hafði hann stýrt Manchester United tímabundið árið 2021.

Hinn 44 ára gamli Carrick lék með Ronaldo hjá United undir lok fyrsta áratugar aldarinnar og skildi eftir sig góð áhrif á Portúgalann þegar hann tók tímabundið við stjórn liðsins. Ronaldo birti þá færslu á samfélagsmiðlum í desember 2021 þar sem hann hrósaði Carrick í hástert.

„Michael Carrick var frábær leikmaður og hann getur líka orðið frábær þjálfari. Ekkert er ómögulegt fyrir þennan mann,“ skrifaði Ronaldo.

„Ég er stoltur af því að hafa spilað með honum og einnig haft hann sem þjálfara.“

Bráðabirgðatímabil Carrick hjá United stóð þó aðeins yfir í þrjá leiki áður en Ralf Rangnick tók við starfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær