fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
433Sport

Arteta hrósar Arne Slot í hástert

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 12. janúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hrósaði Arne Slot, stjóra Liverpool, í hástert fyrir viðbrögð sín við hegðun Gabriel Martinelli í leik liðanna á dögunum.

Það sauð allt upp úr í restina þegar Arsenal var að leita að sigurmarki. Conor Bradley hafði meiðst en Martinelli brást við með að reyna að ýta honum af vellinum.

Þetta fór afar illa í marga, enda kom í ljós að Bradley var illa meiddur og verður frá út leiktíðina. Þetta vissi Martinell og baðst afsökunar eftir leik.

Slot kom Martinelli þá til varnar og sagði viðbrögð hans sennilega vera orsök þess hversu mikið leikmenn tefja í nútíma fótbolta með því að þykjast vera meiddir. Arteta er þakklátur Hollendingnum fyrir að hafa svo gott sem slökkt í þessu máli með þeim hætti.

„Arne Slot gerði frábærlega með því hvernig hann talaði eftir leik, með því að tala á þennan hátt um andstæðing þann og skýra út hans hlið, að Gabi hafi ekki ætlað að meiða neinn,“ sagði Arteta eftir sigur á Portsmouth í enska bikarnum í gær.

Martinelli skoraði þrennu í leiknum. „Martinelli talaði inni á vellinum, eins og á að gera.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi

Mun Beckham ná að skrifa fótboltasöguna? – Sagður skoða að sameina Ronaldo og Messi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford

Öll vötn renna til þess að Maguire framlengi á Old Trafford
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna

Leikmenn Tottenham voru orðnir dauðþreyttir á Frank og endalausi tali hans um erkifjendurna
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik

Vandræðin halda áfram eftir að United vildi kaupa hann – Kippt af velli snemma í fyrri hálfleik
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær