fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Sjúk og ósmekkleg lygafrétt um að hann væri á dánarbeðinu

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. mars 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fölsk færsla á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt var að Kevin Keegan væri á dánarbeði hefur verið afhjúpuð sem sjúk og ósmekkleg gabbfrétt.

Keegan, sem er 75 ára og goðsögn hjá Liverpool, greindist með krabbamein fyrr á þessu ári eftir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús vegna einkenna í kvið.

Þegar fréttirnar bárust í janúar sýndu stuðningsmenn og knattspyrnuheimurinn honum mikinn stuðning, og Newcastle sendi einnig frá sér yfirlýsingu þar sem félagið lýsti yfir hlýhug til hans og fjölskyldu.

Í yfirlýsingu frá fjölskyldu hans kom fram að hann væri í meðferð eftir greininguna. Þrátt fyrir það birtist fölsk yfirlýsing á Facebook þar sem haft var eftir Keegan. „Ég á ekki mikinn tíma eftir… ég vil bara vera í friði með ástvinum mínum á síðustu dögunum.“

Sjónvarpsmaðurinn Pete Graves staðfesti á X að um tilbúning væri að ræða. „Ég get staðfest að þessi yfirlýsing er fölsuð. Kevin er í meðferð og svarar henni vel,“ skrifaði hann og bað fólk um að virða friðhelgi fjölskyldunnar.

Stuðningsmenn Keegan hafa fordæmt þá sem stóðu á bak við færsluna og kallað hana „viðbjóðslega“. Margir hafa hvatt til þess að honum verði leyft að einbeita sér að bata og óskað honum góðs gengis í baráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Endurvekja áhuga á Salah fyrir sumarið – Liverpool hafnaði 150 milljóna punda tilboði frá þeim fyrir nokkrum árum

Endurvekja áhuga á Salah fyrir sumarið – Liverpool hafnaði 150 milljóna punda tilboði frá þeim fyrir nokkrum árum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Máni segir framkomu íslenskra yfirvalda skítlega – Hvetur ríka knattspyrnumenn til að geyma peningana erlendis

Máni segir framkomu íslenskra yfirvalda skítlega – Hvetur ríka knattspyrnumenn til að geyma peningana erlendis