

Fyrrum landsliðsþjálfari Englands, Roy Hodgson, hefur snúið aftur í þjálfun og tekið við Bristol City til loka tímabilsins.
Hodgson, sem er 78 ára, hefur verið ráðinn sem bráðabirgðastjóri og mun stýra liðinu í síðustu sjö leikjum tímabilsins. Á sama tíma tilkynnti félagið um brottrekstur fyrrverandi þjálfara, Gerhard Struber.
Hodgson hefur ekki stýrt liði síðan í febrúar 2024 þegar hann lét af störfum hjá Crystal Palace eftir sitt annað tímabil þar. Bristol City er sem stendur í 16. sæti ensku B-deildarinnar.
Forstjóri félagsins, Charlie Boss, sagði ráðninguna snúast um meira en skammtímaárangur. „Roy kemur með mikla reynslu og mun hjálpa okkur að móta þá menningu og gildi sem við þurfum til að ná árangri í framtíðinni,“ sagði hann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hodgson tengist Bristol City. Hann starfaði áður hjá félaginu á níunda áratugnum, fyrst sem aðstoðarþjálfari og síðar sem aðalþjálfari, þó stutt hafi verið í starfi þá.