

Mikel Arteta og Arsenal hafa orðið að athlægi á samfélagsmiðlum eftir að flugfélagið Ryanair gerði grín að stjóranum á afmælisdegi hans, aðeins nokkrum dögum eftir vonbrigði í úrslitaleik Deildarbikarsins.
Arsenal tapaði 2-0 fyrir Manchester City á Wembley á sunnudaginn, innan við viku áður en Arteta varð 44 ára. Þegar félagið óskaði honum til hamingju með daginn á X á fimmtudag, greip Ryanair tækifærið og svaraði kaldhæðnislega. „Loksins eitthvað til að fagna“.
Arteta hefur sætt gagnrýni fyrir að ná ekki að leiða Arsenal alla leið þegar mest á reynir. Á sex árum hans við stjórnvölinn hefur liðið aðeins unnið einn titil og þrisvar í röð endað í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Þrátt fyrir að hafa komið Arsenal aftur í toppbaráttuna hefur titlaleysið farið í taugarnar á stuðningsmönnum. Það hefur einnig verið notað gegn honum af gagnrýnendum og nettröllum, og Ryanair nýtti sér augnablikið til að bæta í umræðuna.
Tap Arsenal í bikarúrslitunum á sunnudag batt enda á fyrstu raunhæfu vonir liðsins um titil á tímabilinu en liðið er í frábæri stöðu til að vinna ensku deildina.