fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 26. mars 2026 22:37

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Hallgrímsson og hans lærisveinar í írska landsliðinu töpuðu á grátlegan hátt í vítaspyrnukeppni gegn Tékklandi í undanúrslitum umspils um sæti á HM í sumar.

Írar byrjuðu leikinn mun betur og kom Troy Parrott þeim yfir af vítapunktinum á 19. mínútu. Þeir komust svo í 0-2 með sjálfsmarki Matej Kovar skömmu síðar.

Patrik Schick jafnaði af vítapunktinum á 27. mínútu og staðan í hálfleik var 1-2. Tékkar komu mun sterkari út í seinni hálfleik en jöfnuðu ekki fyrr en á 86. mínútu og tryggðu framlengingu.

Þar skoraði hvorugt liðið og því farið í vítaspyrnukeppni, þar sem Tékkar höfðu betur.

Tékkar mæta Danmörku í úrslitaleiknum um sæti á HM, en Danir unnu 4-0 sigur Norður-Makedóníu.

Ítalir eru komnir áfram eftir 2-0 sigur á Norður-Írum þar sem Sandro Tonali og Moise Kean skoruðu mörkin. Þeir mæta Bosníu, sem vann Wales í vítaspyrnukeppni, í úrslitaleik um að komast á HM.

Svíar unnu Úkraínu 1-3 með þrennu frá Viktor Gyokeres. Mæta þeir Póllandi, sem vann Albani í kvöld. Kósóvó og Tyrkland mætast einnig eftir sigra á Slóvakíu og Rúmeníu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Veðbankar hafa litla trú á íslensku strákunum á morgun

Veðbankar hafa litla trú á íslensku strákunum á morgun
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Endurvekja áhuga á Salah fyrir sumarið – Liverpool hafnaði 150 milljóna punda tilboði frá þeim fyrir nokkrum árum

Endurvekja áhuga á Salah fyrir sumarið – Liverpool hafnaði 150 milljóna punda tilboði frá þeim fyrir nokkrum árum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Máni segir framkomu íslenskra yfirvalda skítlega – Hvetur ríka knattspyrnumenn til að geyma peningana erlendis

Máni segir framkomu íslenskra yfirvalda skítlega – Hvetur ríka knattspyrnumenn til að geyma peningana erlendis