fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
433Sport

Félagi Guardiola telur að hann muni hætta með City í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. mars 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München telur að Pep Guardiola telur allar líkur á því að hann hætti hjá Manchester City í sumar.

Guardiola er samningsbundinn City til ársins 2027, en þrátt fyrir það hefur lengi verið rætt um að hann gæti ákveðið að stíga til hliðar eftir langan tíma hjá félaginu. Hann hefur stýrt liðinu í um áratug og náð miklum árangri.

Matthias Sammer, sem vann með Guardiola hjá Bayern München, telur að spænski þjálfarinn gæti þurft að taka sér hlé til að endurheimta orkuna.

„Mér finnst eitthvað ekki vera í lagi þegar ég horfi á hann. Ég þekki svipbrigði hans, líkamsmál og hvernig hann talar,“ sagði Sammer í viðtali.

Hann benti á að þó að Manchester City hafi unnið Carabao-bikarinn nýlega og virðist á góðri leið, þá gæti verið meira á bak við tjöldin.

Guardiola hefur enn ekki tekið ákvörðun um framtíð sína, en talið er að hann muni gera það á næstu vikum.

Framtíð hans gæti því orðið eitt stærsta umræðuefni sumarsins í ensku knattspyrnunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Auknar líkur á því að United ráði Carrick til framtíðar í sumar

Auknar líkur á því að United ráði Carrick til framtíðar í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Áhrif Salah ekki bara innan vallar – Hatursglæpum í Liverpool fækkað verulega

Áhrif Salah ekki bara innan vallar – Hatursglæpum í Liverpool fækkað verulega
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Vill frekar fara heim til Ítalíu en til Manchester

Vill frekar fara heim til Ítalíu en til Manchester
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Bjartsýnn á að geta spilað á næstu vikum

Bjartsýnn á að geta spilað á næstu vikum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ætlar ekki að stunda kynlíf aftur fyrr en að maðurinn sem hún hatar verður rekinn úr starfi

Ætlar ekki að stunda kynlíf aftur fyrr en að maðurinn sem hún hatar verður rekinn úr starfi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segja góðan gang í að hefja framkvæmdir við nýjan völl United – Stefna á að opna á þessari dagsetningu

Segja góðan gang í að hefja framkvæmdir við nýjan völl United – Stefna á að opna á þessari dagsetningu