fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
433Sport

Arsenal skoðar mjög öflugan leikmann fyrir sumarið

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. mars 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal er sagt skoða möguleikann á að fá Khvicha Kvaratskhelia til liðs við sig í sumar.

Georgíski kantmaðurinn, sem leikur með Paris Saint-Germain, hefur verið einn mest spennandi leikmaður Evrópu undanfarin ár. Hann gekk til liðs við PSG í janúar 2025 eftir frábæran tíma hjá Napoli og átti stóran þátt í því að félagið vann Meistaradeildina sama ár.

Samkvæmt Independent hefur Arsenal mikinn áhuga á leikmanninum og er að undirbúa umfangsmiklar breytingar á leikmannahópnum í sumar. Félagið gæti selt einn af lykilmönnum sínum til að skapa svigrúm innan fjárhagsreglna ensku úrvalsdeildarinnar.

Einnig er talið að Kvaratskhelia sé opinn fyrir því að skipta yfir til Arsenal, sem gæti auðveldað möguleg viðskipti. Hinn 25 ára gamli leikmaður sýndi styrk sinn í Meistaradeildinni á dögunum þegar hann skoraði þrjú mörk gegn Chelsea í 16-liða úrslitum.

Arsenal telur að hann geti lyft gæðum liðsins enn frekar og styrkt sóknarleikinn verulega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Áhrif Salah ekki bara innan vallar – Hatursglæpum í Liverpool fækkað verulega

Áhrif Salah ekki bara innan vallar – Hatursglæpum í Liverpool fækkað verulega
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sonur Ronaldo að semja við eitt af hans gömlu félögum

Sonur Ronaldo að semja við eitt af hans gömlu félögum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Bjartsýnn á að geta spilað á næstu vikum

Bjartsýnn á að geta spilað á næstu vikum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Í vandræðum með klósettferðir eftir slys í síðustu viku

Í vandræðum með klósettferðir eftir slys í síðustu viku
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Segja góðan gang í að hefja framkvæmdir við nýjan völl United – Stefna á að opna á þessari dagsetningu

Segja góðan gang í að hefja framkvæmdir við nýjan völl United – Stefna á að opna á þessari dagsetningu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Skoða að selja framherja til að fjármagna kaup á Rashford

Skoða að selja framherja til að fjármagna kaup á Rashford