fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
433Sport

Þakklátur Sóli Hólm bregst við tíðindum gærdagsins – „Rökrétt en fyrsta tilfinningin er sú að maður er í uppnámi“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mohamed Salah, ein mesta goðsögn í sögu Liverpool, tilkynnti í gær að hann væri á förum frá félaginu í sumar. Hefur hann náð samkomulagi við félagið um að fara frítt. Sólmundur Hólm er einn harðasti stuðningsmaður Liverpool hér á landi og gjarnan titlaður formaður Liverpool-samfélagsins.

„Ég myndi segja að þetta sé rökrétt en fyrsta tilfinningin er sú að maður er í uppnámi, en þó ekki þannig að maður sé í öngum sínum yfir að hann sé að fara, heldur vegna þess þegar maður horfir til baka og sér það sem þessi gæi er búinn að gera. Þegar maður sér öll þessi met sem dreifðust á nokkra áður en hann kom. Hann er með þau nánast öll núna, nema flest skoruð mörk. Þessi gæi hefur aldrei fengið þá virðingu sem hann á skilið. Það er ótrúlegt hvað þessi maður hefur gert fyrir þessa deild og hvað hann hefur hækkað rána rosalega,“ segir í Sóli í samtali við 433.is um tíðindi gærdagsins.

Salah hefur verið besti leikmaður Liverpool frá komu sinni árið 2017 en á yfirstandandi leiktíð hefur farið að hægast á þessum 33 ára gamla leikmanni. Sóli segir virðingarvert að félagið leyfi honum að fara frítt þó samningur hans renni ekki út í sumar. Það sé til marks um hvernig félag Liverpool er.

„Þetta er eins og að missa einhvern ættingja sem er samt alveg gamall. Þetta er alveg reiðarslag, en þetta er ekki eins og að missa einhvern ungan af slysförum. Ég horfi bara til baka með þakklæti. Hann er að fara á réttum tíma og mér finnst mjög vel gert hjá félaginu ef það reynist rétt að hann fái að fara frítt. Það er það Liverpool-samfélag sem ég vil tilheyra, lið sem borgar út samning manns sem deyr af slysförum og leyfir goðsögn að fara frítt. Þetta er það sem Liverpool snýst um,“ segir Sóli, en Liverpool borgaði fjölskyldu Diogo Jota samning hans upp eftir að hann lést í bílslysi síðasta sumar.

Salah á sínu fyrsta tímabili með Liverpool.

Engin eftirsjá

Sóli er á því að Salah eigi að vera við toppinn, ef ekki á toppnum, þegar kemur að umræðunni um bestu leikmenn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Skorar hann á þá sem eru á öðru máli að útskýra hvers vegna.

„Ég spyr, af hverju á ég ekki að setja hann í efsta sæti? Er það af því hann vann ekki 13-14 titla í einhverju geggjuðu liði? Hann er búinn að vinna allt sem hægt er að vinna. Ég vil frekar fá svör frá þeim sem segja að hann ætti ekki að vera í efsta sæti. Hann er allavega þægilega í topp tveimur.“

Salah skrifaði undir nýjan tveggja ára risasamning við Liverpool undir lok síðustu leiktíðar, þar sem hann var hreint frábær. Sóli segir að menn eigi ekki að sjá eftir því.

„Það er ekki nokkur eftirsjá. Það eru bara einhverjar milljónir til að frá. Ég pæli aldrei í því hvað menn eru seldir eða keyptir á, bara hvað þeir gera fyrir klúbbinn. Það er algjör hugsjónavilla að vera að velta sér upp úr því hvað menn kosta. Það er bara frábært að geta borgað honum góð laun síðasta árið fyrir það sem hann hefur gert. Svo fær hann bara að fara í friði. Takk fyrir þína þjónustu.“

En hvert á Salah að halda næst?

„Ég vil sjá hann fara langt í burtu, bara til Sádí, að Arabaheimurinn fái að njóta hans líka. Hann hefur til dæmis breytt því í Liverpool að fordómar gagnvart múslimum hafa minnkað mjög. Núna er kominn tími til að þeir fái að njóta hans á lokasprettinum.“

Sóli ávarpaði þegna Liverpool-samfélagsins í Vikunni með Gísla Marteini eftir að Jurgen Klopp hætti sem stjóri liðsins árið 2024. Skjáskot: RÚV

Tímabilið vonbrigði

Sóli vill sjá Liverpool sækja Michael Olise frá Bayern Munchen til að fylla skarð Salah.

„Sonur minn sem er 19 ára vill fá Olise. Hann er miklu stærri gagnabanki en ég og ég hef alltaf getað treyst honum í þessum efnum svo Olise er efstur á mínum lista.“

Hvað varðar tímabilið hjá Liverpool er Sóli eðlilega vonsvikinn, enda ríkjandi Englandsmeistarar í vandræðum í deildinni og harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. Sóli, sem og margir aðrir, vill skipta knattspyrnustjóranum Arne Slot út í sumar.

„Ég er rosalega vonsvikinn. Maður er eiginlega bara búinn að afskrifa þetta tímabil. Ég sagði í einhverjum hópi að við myndum hvorki fá Meistaradeildarsæti eða nokkurn titil og því miður bendir margt til þess að ég verði sannspár með það, þetta er bara hræðilegt. Að sjálfsögðu vil ég skipta um þjálfara í sumar, ef ekki fyrr. Ég er rosalega óánægður með þetta enda held ég að það sé enginn ánægður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Segist sakna enska boltans

Segist sakna enska boltans
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Steve Cooper beðinn afsökunar vegna furðulegra ásakanna

Steve Cooper beðinn afsökunar vegna furðulegra ásakanna
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja fresta til að undirbúa sig betur fyrir einvígið við Liverpool – Andstæðingurinn allt annað en sáttur og sakar þá um óvirðingu

Vilja fresta til að undirbúa sig betur fyrir einvígið við Liverpool – Andstæðingurinn allt annað en sáttur og sakar þá um óvirðingu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United ekki byrjað að ræða við neinn um stjórastólinn í sumar

United ekki byrjað að ræða við neinn um stjórastólinn í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Treysta Howe áfram og ætla í miklar breytingar á hópnum í sumar

Treysta Howe áfram og ætla í miklar breytingar á hópnum í sumar
433Sport
Í gær

Brynjólfur lenti í vandræðum með dvalarleyfi í Kanada og komst ekki til landsins í gær

Brynjólfur lenti í vandræðum með dvalarleyfi í Kanada og komst ekki til landsins í gær
433Sport
Í gær

Vill helst fara til Real Madrid í sumar

Vill helst fara til Real Madrid í sumar