fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
433Sport

Furðulegt safn á heimili Messi – Eiginkonan og börnin sjá um það

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. mars 2026 21:00

Messi og Antonella.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Antonela Roccuzzo, eiginkona Lionel Messi, hefur opnað sig um áhugamál sitt og sagt frá sérstökum safni á heimili fjölskyldunnar í Flórída.

Roccuzzo, sem býr ásamt Messi og þremur sonum þeirra í glæsilegu húsi, er mikill Lego-aðdáandi og hefur safnað fjölda verkefna sem hún vill ekki taka í sundur. Hún segir að fjölskyldan hafi komið sér upp svæði þar sem þau sýna Lego-smíðarnar sínar.

Í viðtali við Harper’s Bazaar sagði hún að uppáhalds verkefnið sitt væri Hogwarts-kastalinn. „Hann er risastór og ég er heilluð af honum. Börnin mín og ég erum með eins konar safn þar sem við sýnum allar Lego-smíðarnar okkar,“ sagði hún.

Hjónin eiga þrjá syni, Thiago, Mateo og Ciro, og segir Roccuzzo að móðurhlutverkið hafi haft mest áhrif á hana. „Það sem breytti mér mest sem manneskju var að verða móðir. Frá þeim tímapunkti hafa börnin mín alltaf verið í forgangi,“ sagði hún.

Elsti sonurinn, Thiago, hefur þegar stigið sín fyrstu skref í knattspyrnu og æfir með yngri flokkum Inter Miami. Fjölskyldulífið virðist því í fyrirrúmi hjá Messi og Roccuzzo utan vallar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tvö ensk félög vilja Fabregas

Tvö ensk félög vilja Fabregas
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þakklátur Sóli Hólm bregst við tíðindum gærdagsins – „Fyrstu viðbrögð eru uppnám“

Þakklátur Sóli Hólm bregst við tíðindum gærdagsins – „Fyrstu viðbrögð eru uppnám“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

United hefur mikinn áhuga á spænska stjóranum – Eftirsóttur víða

United hefur mikinn áhuga á spænska stjóranum – Eftirsóttur víða
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir tíðinda að vænta frá Anfield

Segir tíðinda að vænta frá Anfield
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar