fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Segist elska Óskar en er mjög hugsi eftir helgina – „Af hverju þarf hann að finna upp hjólið?“

433
Þriðjudaginn 24. mars 2026 08:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikael Nikulásson, stuðningsmaður KR óttast að lið sitt nái ekki miklum árangri í sumar eftir tap gegn Fylki í úrslitum Lengjubikarsins um helgina. KR tapaði leiknum í vítaspyrnukeppni.

Arnar Freyr Ólafsson markvörður KR fékk að líta rauða spjaldið í leiknum sem reyndist dýrt, Mikael gagnrýnir hvernig Óskar lætur markvörðinn koma upp á völlinn.

„Ég er byrjaður að sjá að þetta verði alveg eins og í fyrra, ég er ekki að segja tíunda sæti. Ég talaði um það að Óskar væri að tala um að hann ætlaði að vera ýktari en í fyrra. Það á að vera 3-1 í hálfleik ef markvörðurinn er í markinu, hann fær svo rauða spjaldið af því að hann er úti á miðju. Ég horfði á byrjunarliðið, þetta er sama lið og í fyrra fyrir utan Arnór Ingva sem var í banni. Varnarlega er þetta bara grín,“ sagði Mikael í Þungavigtinni í gær.

Mikael rifjaði þá upp leik frá árinu 1999 þegar hann var leikmaður Fylkis.

„Ég spilaði ekki marga úrslitaleiki í meistaraflokki, ég spilaði úrslitaleik á móti KR 1999 í Reykjavíkurmótinu. Þessi leikur var í maí á Fylkisvelli, bæði KR og Fylkir voru með betri lið þá en þau voru með í dag. Ég spilaði frammi í þessum leik og við töpuðum 1-0, það var helvíti erfitt að skapa sér færi. KR var með Andra Sigþórs og Gumma Ben frammi.“

„KR vann 1-0 og þetta var ekkert skemmtilegur leikur, þeir fóru inn í sumarið og urðu Íslands og bikarmeistarar. Þeir fara nú í úrslitaleik gegn Fylki, þeir skora fjögur mörk og þetta er svakalega skemmtilegt. Hvort vilja KR-ingar vinna 1-0 í leiðinlegum leik eða spila þennan frábæra fótbolta og skora þessi mörk. En eiga ekki séns á því að verða Íslandsmeistarar, hvað vilja KR-ingar? Þeir vinna ekki titla svona, þú vinnur ekki titla þegar þú færð fjögur mörk á þig gegn Fylki.“

Mikael skilur ekki af hverju Óskar er að láta markvörðurinn koma svona fram völlinn.

„Hvað er verið að stefna að? Mér finnst Óskar besti þjálfarinn í þessari deild en það þarf að spila varnarleik. Markvörðurinn eyðileggur leikinn, ef þeir spila sama fótbolta en markvörðurinn er bara þar sem hann á að vera þá vinna þeir þennan leik. Var James Trafford á miðjunni þegar City var að sundurspila Arsenal um helgina? Af hverju þarf Óskar að finna upp hjólið, markvörðurinn gaf mark og fékk rautt spjald. KR voru stórkostlegir í fyrri hálfleik, hefðu getað skorað tíu mörk en töpuðu samt leiknum. Ég elska Óskar og mun alltaf gera það, er verið að reyna að fá á sig mörk til að vinna 5-4.“

„AF hverju tekur hann ekki hanskana af markverðinum? Til hvers er hann með hanska, hann snertir boltann oftar við miðjuna enn í vítateig. Það er skandall að KR tapi fyrir þessu liði Fylkis,“ sagði Mikael sem var nokkuð heitt í hamsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sussaði á manninn sem kallaði hann rúnkara – Myndbandið vekur athygli

Sussaði á manninn sem kallaði hann rúnkara – Myndbandið vekur athygli
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Viktor Nói í FH

Viktor Nói í FH
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gerðist í fyrsta sinn í meira en ár hjá Arsenal

Gerðist í fyrsta sinn í meira en ár hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Starfshópurinn skilar skýrslunni af sér – Margt heppnast hér á landi en annað má betur fara

Starfshópurinn skilar skýrslunni af sér – Margt heppnast hér á landi en annað má betur fara
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arteta hrósað fyrir drengilega framkomu í gær – Myndband

Arteta hrósað fyrir drengilega framkomu í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Munnlegt samkomulag við Zidane í höfn

Munnlegt samkomulag við Zidane í höfn
433Sport
Í gær

Ljótar senur í borginni í gær – Hörð slagsmál og glerbrot út um allt

Ljótar senur í borginni í gær – Hörð slagsmál og glerbrot út um allt