

Lucas Moura var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum í leik með Sao Paulo gegn Atletico Mineiro.
Leikurinn endaði með 1–0 sigri Atletico Mineiro, en atvikið sem vakti mesta athygli kom þegar Moura kom inn á sem varamaður á 60. mínútu. Stuttu síðar lenti hann í hörku samstuði við Tomas Cuello.
Moura fékk hné andstæðings síns í sig og féll illa til jarðar. Hann átti erfitt með að anda eftir áreksturinn og þurfti að fá aðhlynningu á vellinum áður en hann var borinn af velli á börum. Hann hafði þá aðeins verið inni á vellinum í um 12 mínútur.
Félagið staðfesti síðar að Moura hefði verið fluttur á sjúkrahús þar sem hann fór í rannsóknir. Niðurstöður sýndu að hann væri með brotin tvö rifbein.
Ekki er enn ljóst hversu lengi hann verður frá keppni, en hann hefur ekki enn fengið leyfi til að snúa aftur til Sao Paulo og mun halda áfram meðferð á sjúkrahúsi.