

Fulham er nálægt því að ganga frá kaupum á Ricardo Pepi frá PSV Eindhoven.
Pepi var á óskalista Fulham í janúarglugganum og félagið reyndi að klára kaupin fram á lokadegi félagaskipta, en samningar náðust ekki á þeim tíma. Nú virðist hins vegar allt stefna í að sóknarmaðurinn fari til Lundúna í læknisskoðun fyrir helgi.
Samkvæmt Sky Spors verður kaupverðið það sama og rætt var um í janúar, um 30 milljónir punda auk um 1,7 milljóna punda í viðbótargreiðslum.
Ef allt gengur eftir mun Pepi ganga til liðs við Fulham 1. júlí eftir að hafa klárað tímabilið með PSV.
Ástæðan fyrir því að samningar náðust ekki fyrr var sú að PSV tókst ekki að finna staðgengil fyrir leikmanninn á þeim tíma.
Fulham hefur hins vegar haldið áfram að vinna að málinu og er nú á lokametrunum með að tryggja sér þjónustu hans.