fbpx
Sunnudagur 22.febrúar 2026
433Sport

Ronaldo hættur í fýlu og spilar í dag

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 14. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mótmælaaðgerðum Cristiano Ronaldo hjá Al-Nassr virðist vera lokið en portúgalska stórstjarnan hefur verið valin í leikmannahóp liðsins fyrir leik gegn Al-Fateh í dag.

Ronaldo, sem er 41 árs, sást með liðsfélögum sínum fyrir brottför liðsins og bendir það til þess að hann sé klár í að snúa aftur til keppni. Hann hafði misst af þremur leikjum þar sem hann var sagður ósáttur við félagaskiptamál hjá Al-Nassr.

Samkvæmt fréttum var Ronaldo óánægður með að félagið eyddi minna í nýja leikmenn en helstu keppinautar. Óánægja hans jókst þegar Al-Hilal fékk leyfi til að semja við fyrrum liðsfélaga hans hjá Real Madrid, Karim Benzema.

Sérstaka athygli vekur að Al-Nassr, Al-Hilal og Al-Ahli eru öll að stærstum hluta í eigu fjárfestingasjóðsins PIF í Sádi-Arabíu. Talið er að Ronaldo hafi verið ósáttur við að Al-Hilal hafi eytt um 180 milljónum punda meira í leikmannakaup en Al-Nassr frá því hann kom til félagsins tímabilið 2022-23.

Nú virðist þó sem Ronaldo sé tilbúinn að einbeita sér aftur að boltanum og hjálpa Al-Nassr í baráttunni fram undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Ræðir stöðu Kobbie Mainoo og útskýrir að ákvörðunin hafi ekki verið erfið

Ræðir stöðu Kobbie Mainoo og útskýrir að ákvörðunin hafi ekki verið erfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Daninn fær á baukinn – Klöppuðu kaldhæðnislega fyrir honum

Daninn fær á baukinn – Klöppuðu kaldhæðnislega fyrir honum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Öruggt að þessir tveir fari frá Tottenham ef liðið fellur

Öruggt að þessir tveir fari frá Tottenham ef liðið fellur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opinbera hvað Þorvaldur og Eysteinn þénuðu á síðasta ári í starfi

Opinbera hvað Þorvaldur og Eysteinn þénuðu á síðasta ári í starfi