Dregið verður í aðra umferð forkeppni Evrópubikarsins á morgun.
Um er að ræða nýja Evrópukeppni félagsliða kvennamegin. Er þetta keppnin fyrir neðan Meistaradeildina í styrkleika.
Íslandsmeistarar Breiðabliks verða á meðal liða í drættinum, sem fer fram klukkan 13 á morgun á íslenskum tíma.
Fyrstu umferð forkeppninnar lýkur í kvöld og þá kemur í ljós hvaða liðum Breiðablik gæti mætt.