fbpx
Mánudagur 15.september 2025
433Sport

Mikael greinir krísuna í Vesturbæ – Segir það óvirðingu við þá sem voru í 40 ár á undan að Óskar Hrafn sé enn í starfi

433
Mánudaginn 15. september 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þeir eru komnir í alvöru holu, þeir eiga fimm leiki eftir á móti þessum fimm liðum. Ég held að þeir haldi sér uppi,“ sagði Mikael Nikulásson fyrrum þjálfari KFA og harður stuðningsmaður KR um stöðu mála í Vesturbæ. Hann ræddi málið í Þungavigtinni í dag.

KR tapaði 7-0 á heimavelli gegn Víkingi í gær og ljóst að KR þarf að berjast fyrir lífi sínu í neðri hluta deildarinnar. KR gæti farið niður í fallsæti í kvöld þegar Afturelding heimsækir ÍA, fari strákarnir úr Mosfellsbæ með sigur af hólmi verður KR í ellefta sæti þegar deildinni er skipt í tvennt.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR var eðlilega niðurlútur eftir tapið.  „Það er alveg ljóst að þó Óskar sé vinur minn, þetta er búið að klúðrast þetta tímabil. Þetta er diss á alla aðra þjálfara sem hafa verið hjá KR síðustu 40 ár. Það væri búið að láta það fara, bara tveir leiki gegn Víkingi og Val er 1-13,“ sagði Mikael um þjálfara KR og hans framtíð.

Mikael segir að leikstíll Óskars með KR sé ekki að ganga upp. „Þessi leið er búin að feila, hann vissi að hann væri að taka séns fyrir mót. Ég hélt að þetta myndi ganga, þetta er búið að feila illilega. Nú er ekkert annað að gera en að fara til baka og ná í stig.“

Mikael veltir því þó fyrir sér hvernig Óskar geti endurskoðað hlutina eftir að hafa æft þennan fótbolta í heilt ár. „Hvenær ætlar hann að fara að endurskoða þetta núna? Það er erfitt að endurskoða núna, ætla þeir að pakka í vörn? Þeir hafa svo sem gert það gegn Fram og Vestra á útivelli, ég veit það ekki. Leikstíll skiptir engu máli fyrir KR í úrslitakeppni, leikmenn verða að fara að spila betur.“

„Þetta er versta frammistaða í sögu KR, þetta eru verstu úrslit á heimavelli. Óskar hlýtur að vera tæpur með starfið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Telja sig geta keypt Grealish á lækkuðu verði næsta sumar

Telja sig geta keypt Grealish á lækkuðu verði næsta sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Guardiola í flokk með Ferguson

Guardiola í flokk með Ferguson
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guðjón Pétur: „Það mun vera reiði í mér alla ævi gagnvart fólkinu sem stóð á bak við þessa frétt“

Guðjón Pétur: „Það mun vera reiði í mér alla ævi gagnvart fólkinu sem stóð á bak við þessa frétt“
433Sport
Fyrir 3 dögum

Þessar deildir klárast um helgina – Víða mikil spenna

Þessar deildir klárast um helgina – Víða mikil spenna