Besti vinur Diogo Jota og fyrrum liðsfélagi hans, Ruben Neves, hefur fordæmt portúgalska slúðurblaðið TV Guia eftir að það birti forsíðumynd sem virtist sýna hann í rómantísku samhengi með ekkju Jota, Rute Cardoso.
Myndin, sem líklega var tekin rétt áður en þau faðmuðust eða kysstust á kinn, var sett á forsíðu með fyrirsögninni „Eftir dauðann: Hvernig ekkja Diogo Jota leitar til besta vinar hans“ sagði á forsíðunni og hefur valdið mikilli reiði og hneykslun í Portúgal.
Neves tók til sinna ráða og birti ítarlega yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann gagnrýnir myndaval tímaritsins harkalega:
„Góðan daginn. Ég trúi alltaf á það góða í fólki, þótt ég hafi oft verið varaður við því. Ég hef verið svikinn, en aldrei óskað neinum ills. Sá sem valdi þessa mynd á forsíðuna á ekki skilið að vera hamingjusamur alveg eins og myndaval þeirra var ekki fallegt,“ segir Neves.
„Ég og eiginkona mín höfum verið saman í yfir 11 ár. Við erum hamingjusöm, eigum fjölskyldu sem fyllir mig stolti og höfum aldrei lent í neinum hneykslismálum. Við höfum reynt að styðja Rute og fjölskyldu hennar eftir fremsta megni. Myndin sem var valin er jafn óheppileg og sá sem valdi hana og birti.“
„Ég ber virðingu fyrir því að fólk vilji standa sig í vinnu, en ég ber enga virðingu fyrir þeim sem virða ekki aðra. Enn og aftur: Ég er stoltur af konunni minni og fjölskyldunni minni. Við erum líka stolt af Rute, fyrir styrkinn sem hún hefur sýnt. Við erum hér fyrir hana, hvernig sem það er, og hún veit það. Takk.“
Neves leggur áherslu á að hann sé ekki að gagnrýna efni greinarinnar sjálfrar sem fjallaði ítarlega um vináttu hans og fjölskyldu Jota heldur myndaval sem setti samband þeirra Rute í villandi samhengi.
Jota lést, ásamt bróður sínum Andre, í hörmulegu bílslysi í byrjun júlí. Hann og Rute höfðu gifst aðeins fáum dögum fyrir slysið og lætur hann eftir sig þrjú börn.