Paul Parker, fyrrum leikmaður Manchester United, segist vita af hverju Marcus Rashford sé í vandræðum með að finna sér nýtt félag.
Parker telur að persónuleiki Rashford heilli fá félög en hann er líklega að yfirgefa einmitt United í sumar.
Rashford er ekki allra en hann hefur oft verið ásakaður um að einbeita sér of mikið að hlutum utan vallar frekar en innan.
Englendingurinn er uppalinn hjá United en hvar hann spilar næsta vetur er erfitt að segja til um þessa stundina.
,,Félög í ensku úrvalsdeildinni gætu viljað fá leikmanninn en ekki persónuna og það sem fylgir henni,“ sagði Parker.
,,Hann er með fleira fólk í kringum sig en bardagamaður í boxi. Hann átti alls ekki frábæra dvöl hjá Aston Villa, hann var allt í lagi.“