Íslenska kvennalandsliðið fellur niður um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA. Liðið er nú í 14. sæti og hefur sætaskipti við Ítalíu.
Ísland hefur leikið fjóra leiki síðan síðasta útgáfa listans kom út. Í apríl gerði liðið jafntefli við Noreg og Sviss hér heima, en í maí og júní gerði það jafntefli við Noreg ytra og tapaði gegn Frakklandi hér heima.
Eins og flestir vita tekur Ísland þátt í lokakeppni EM í Sviss í næsta mánuði. Liðið mætir heimakonum, Finnlandi og Noregi þar. Fyrsti leikur er gegn Finnum 2. júlí.