Ronnie Stam fyrrum leikmaður Wigan er á leið í fangelsi en hann er ákærður fyrir að hafa flutt inn tvö tonn af kókaíni.
Einnig er farið fram á það að hann greiði um 250 milljónir króna í sekt.
Stam var hluti af liði Wigan sem vann enska bikarinn árið 2013 en hann lék í þrjú ár hjá félaginu.
Stam var keyptur frá Twente árið 2010 en hann lék tæplega 80 leiki fyrir Wigan.
Hollenska lögreglan handtók hann í fyrra en unnusta hans og foreldrar voru einnig handtekinn og eru talin tengjast málinu.
Bróðir hans var handtekinn í fyrra grunaður um stórfelldan innflutning á kókaíni.