Arsenal mun kaupa Martim Zubimendi frá Real Sociedad í byrjun júlí, félagið vill ekki ganga frá kaupunum á þessu fjárhagsári.
Knattspyrnufélög gera upp árið í lok júní en vegna FFP regluverksins vill Arsenal fara varlega.
Arsenal vill fá kaupin á Zubimendi inn á næsta ár í rekstri og því mun félagið rífa fram 59 milljónir punda þá.
Zubimendi hefur gengið frá öllu við Arsenal en spænski landsliðsmaðurinn hefur lengi verið mjög eftirsóttur.
Real Madrid var orðað við hann í sumar en hann hafnaði Liverpool síðasta sumar en fer nú til Arsenal.