

Í vikunni varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum A-deildar Lengjubikars karla. Þór gerði þá jafntefli við FH, sem þýddi að ÍR komst í undanúrslit og mætir þar Val.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Fylkir og KR, þannig að undanúrslitaliðin í A-deild karla í ár koma öll úr Reykjavík.
Fylkir og KR mætast í dag en leikur ÍR og Vals fer fram í næstu viku.
Ekki er ólíklegt að Valur og KR leiki til úrslita en þessi sömu lið léku til úrslita í Reykjavíkurmótinu.