
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, hefur rætt við Ben White, leikmann Arsenal, um hugsanlega endurkomu í landsliðið.
White hefur ekki spilað fyrir England síðan 2022 en hann yfirgaf enska hópinn eftirminnilega á HM í Katar. Það var talið vegna meints ósættis við Steve Holland, fyrrum aðstoðarþjálfara liðsins. Ekki er vitað hvað er til í því.

Bakvörðurinn hefur ekki gefið kost á sér síðan og var þar af leiðandi ekki með enska liðinu á EM síðasta sumar.
Nú er Tuchel hins vegar tekinn við af Gareth Southgate og hefur hann rætt við fjölda leikmanna í kringum liðið, þar á meðal White. Er því mögulegt að hann verði í enska landsliðshópnum fyrir leiki gegn Albaníu og Lettlandi í undankeppni HM í næsta mánuði.
White hefur verið frá vegna meiðsla undanfarið en er að snúa aftur í lið Arsenal.