fbpx
Laugardagur 17.janúar 2026
433Sport

Glímir við mjög alvarlegt krabbamein – Hélt að þetta væri búið en svo kom það aftur

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. desember 2025 09:30

Shaka Hislop

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi úrvalsdeildarmarkvörðurinn Shaka Hislop, 56 ára, hefur opinberað að hann sé að berjast við árásargjarnt krabbamein í færslu á samfélagsmiðlum.

Hislop, sem lék meðal annars með Newcastle og West Ham, sagði á Instagram að hann hafi fyrir 18 mánuðum farið í árlega heilsufarsskoðun þar sem hann bað alltaf um PSA-blóðprufu. Að þessu sinni reyndist gildi prófsins hækkað.

„MRI og sýnataka sýndu fljótt að ég væri með nokkuð ágengt blöðruhálskirtilskrabbamein,“ sagði hann.

„Fyrir ári síðan, nánast upp á dag, fór ég í stóra aðgerð og hélt að það væri búið.“

En sex mánuðum síðar hækkaði PSA gildið á ný og myndataka sýndi að krabbameinið hafði dreift sér í mjaðmagrindina.

Hislop hóf lyfjameðferð fljótlega og lauk nú nýverið sjö og hálfri viku af geislameðferð. „Ferðalaginu er ekki lokið,“ sagði hann.

Hislop er best þekktur fyrir tíma sinn í markinu hjá Newcastle á árum Kevin Keegan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni – Jökull Andrésson léttur, ljúfur og kátur

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni – Jökull Andrésson léttur, ljúfur og kátur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Glasner staðfestir að hann fari í sumar – Afþakkar nýjan samning

Glasner staðfestir að hann fari í sumar – Afþakkar nýjan samning
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

KR í samstarf í Gana

KR í samstarf í Gana
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fjármáladeild United á nálum – Stefnir í mígandi tap á rekstrinum á þessu tímabili

Fjármáladeild United á nálum – Stefnir í mígandi tap á rekstrinum á þessu tímabili