fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Sögðu að eiginkonan hefði staðfest andlát hjá fyrrum leikmanni United – Hann er hins vegar á lífi

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. desember 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi miðjumaður Manchester United, Remi Moses, er á lífi þrátt fyrir fregnir sem hermdu að fyrsti svarti markaskorari félagsins hefði látist.

Í grískum fjölmiðlum á miðvikudag var fullyrt að Moses, sem lék 199 leiki fyrir United á níunda áratugnum, væri fallinn frá. Tengslin við Grikkland koma til vegna þess að Moses og eiginkona hans bjuggu á Zakynthos þegar hann þjálfaði Doxa Pigadakion um skamma hríð árið 2020.

Doxa Pigadakion gaf jafnvel út yfirlýsingu þar sem fullyrt var að eiginkona Moses hefði tilkynnt fráfall hans.

En blaðamaðurinn Andy Mitten hnekkti þeim sögusögnum og staðfesti að Moses væri „á lífi og við góða heilsu“. Fljótlega staðfesti fjölskyldumeðlimur þessa sömu niðurstöðu og sagði að hann væri enn á lífi og heill heilsu.

Samkvæmt heimildum Daily Mail er United einnig meðvituð um að um rangar upplýsingar sé að ræða. Moses býr íManchester en ekki í Grikklandi. Hvernig rangfærslan fór af stað er óljóst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah