fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Albert tjáir sig eftir að hafa verið hreinsaður af ásökunum um nauðgun – „Ég læt þó ekki kúga mig“

433
Fimmtudaginn 4. desember 2025 16:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þá er þessu máli endanlega lokið,“ skrifar Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu. Albert, var í landsrétti í síðustu viku sýknaður af ákæru um nauðgun

Albert var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra af ákæru fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis. Var þeirri niðurstöðu áfrýjað til landsréttar.

„Nú eru 893 dagar liðnir síðan atvikin áttu sér stað. Ég var þarna, ég man allt og ég veit hvað er satt og rétt. Ég er ánægður að sjá Landsrétt staðfesta niðurstöðuna sem Héraðsdómur komst áður að – og ekki má gleyma að héraðssaksóknari felldi málið einnig niður á sínum tíma. Þetta kalla ég sannfærandi 3–0 sigur í minni vinnu.“

Albert neitaði alla tíð sök í málinu og segir það hafa reynt mikið á sig. „En samt sit ég hér, tæpum þremur árum seinna, eftir að hafa verið undir smásjá fjölmiðla nánast daglega allan þennan tíma. Það hefur tekið á – bæði andlega og líkamlega. Þetta mál hefur komið í veg fyrir mörg tækifæri í fótboltanum; eins og allir vita er ferillinn stuttur og hvert ár, hver mánuður og jafnvel hver dagur dýrmætur. Ég er þó ekki að biðja um vorkunn. Það sem hélt mér gangandi voru mínir nánustu. Börnin mín, barnsmóðir mín, foreldrar mínir, systur mínar, fjölskyldan og vinir. Þið eruð hetjurnar í þessu ferli. Ég get aldrei þakkað ykkur nóg.“

Hann segist hafa misst vini í ferlinu en aðrir hafi staðið með sér. „Á hinn bóginn hef ég líka misst fólk sem reyndist aðeins vera vinir þegar það hentaði þeim – en ekki þegar á þurfti að halda. Það særði, en það var líka gott að átta sig á því fyrr en síðar. Á móti stóðu aðrir með mér og sýndu mér hvað sönn vinátta er. Þeim er ég innilega þakklátur.“

Hann segist átta sig á því að ekki allir trúi því að hann sé saklaus. „Ég veit að það er fólk þarna úti sem mun ekki trúa mér, sama hvað gögn málsins eða niðurstöður sýna – og það er í góðu lagi. Ég veit hver ég er og fyrir hvað ég stend. Skoðun annarra mun aldrei brjóta mig.“

„Til ykkar sem enn eruð í vafa hvet ég ykkur til að lesa dóma beggja dómstiga og hafa í huga að samkvæmt gögnum málsins voru fleiri en bara ég ásakaðir þetta umrædda kvöld. Ég læt þó ekki kúga mig, sérstaklega ekki fyrir eitthvað sem aldrei gerðist. Við getum farið nánar út í það síðar ef þarf.“

„Ég vona einlæglega að þótt eitt skemmt epli hafi verið þarna úti, þá skemmi það ekki fyrir þeim sem eru raunveruleg fórnarlömb ofbeldis. Ekki meira í bili — peace“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah