fbpx
Laugardagur 04.október 2025
433Sport

Stuðningsmenn Liverpool slegnir yfir nýju lagi Taylor Swift

433
Laugardaginn 4. október 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umdeild félagaskipti Trent Alexander-Arnold frá Liverpool til Real Madrid vöktu mikla athygli í sumar, en nú hefur hann að margra mati óvænt ratað í nýja plötu Taylor Swift, The Life of a Showgirl.

Alexander-Arnold, sem er 26 ára, ákvað að láta samning sinn við Liverpool renna út og gekk til liðs við Real Madrid frítt í sumar. Það fór illa í stuðningsmenn Liverpool.

Getty Images

Í einu lagi plötunnar vísar Taylor Swift í „samning við Real Madrid“, sem margir túlka sem skot á Trent. Það hefur vakið miklar umræður á samfélagsmiðlum.

„Liverpool Swifties, ekki hlusta á lag númer átta, hún tekur fyrir viðkvæmt málefni fyrir ykkur,“ skrifaði einn stuðningsmaður til að mynda á X.

Alexander-Arnold hefur áður viðurkennt að hann sé sjálfur aðdáandi Swift. Nefndi hann til að mynda Anti-Hero sem uppáhaldslagið sitt í viðtali á síðasta ári.

Real Madrid mætir Liverpool á Anfield í nóvember, þar sem Trent gæti átt von á köldum móttökum frá sínum gömlu stuðningsmönnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Leikur helgarinnar breytir engu fyrir stöðu Amorim

Leikur helgarinnar breytir engu fyrir stöðu Amorim
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Meiðsli Alisson verri en talið var í fyrstu

Meiðsli Alisson verri en talið var í fyrstu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Áfall fyrir Newcastle
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Heimir Guðjónsson sendir sneið á Davíð Viðarsson – „Það er bara hlutur sem kemur mér bara ekkert við“

Heimir Guðjónsson sendir sneið á Davíð Viðarsson – „Það er bara hlutur sem kemur mér bara ekkert við“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Eiður Smári hefði tekið upp símann – „Arnar gerir þetta á sinn hátt og stendur og fellur með því“

Eiður Smári hefði tekið upp símann – „Arnar gerir þetta á sinn hátt og stendur og fellur með því“
433Sport
Í gær

Áhugaverður enskur landsliðshópur: Bellingham ekki í hóp og fleiri stjörnur í kuldanum

Áhugaverður enskur landsliðshópur: Bellingham ekki í hóp og fleiri stjörnur í kuldanum
433Sport
Í gær

Þórir Hákonarson reisir knatthöll í Ólafsfirði á næsta ári

Þórir Hákonarson reisir knatthöll í Ólafsfirði á næsta ári
433Sport
Í gær

Fyrrum eigandi Crystal Palace skoðar að kaupa félag í krísu

Fyrrum eigandi Crystal Palace skoðar að kaupa félag í krísu
433Sport
Í gær

Segir að stjórn United muni taka ákvörðun um Amorim eftir ákveðið marga leiki

Segir að stjórn United muni taka ákvörðun um Amorim eftir ákveðið marga leiki