

„Það er með miklum söknuði sem við kveðjum kæran og duglegan samstarfsmann og vin,“ segir meðal annars í minningarorðum Gróttu um Hrafnhildi, sem var 51 árs gömul er hún féll frá.
„Bros hennar og hlýlegt viðmót voru einkenni hennar en hún var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd þegar þess þurfti. Þeir sem þekktu hana vita hversu mikill kraftur, jákvæðni og ákveðni bjó í henni. Hún lét alltaf til sín taka þegar hún var í húsinu og ekkert virtist geta stöðvað hana í að leggja sitt af mörkum.“
Þá er fjallað um andlát Hrafnhildar í Morgunblaðinu frá því í gær. Þar kemur meðal annars fram að árið 2007 hafi hún, ásamt móður sinni, sett á fót Mænuskaðastofnun Íslands sem hefur það hlutverk að vekja athygli á mænuskaða og þrýsta á að lækning finnist við honum.
Sjálf lenti Hrafnhildur í alvarlegu bílslysi árið 1989 og lamaðist fyrir neðan mitti. Sex árum síðar kom hingað til lands kínverskur skurðlæknir, Zhang Shaocheng, og gerði tilraunaaðgerðir á Hrafnhildi ásamt Halldóri Jónssyni bæklunarlækni, þáverandi yfirlækni bæklunardeildar Landspítalans, sem fólust í því að tengja millirifjataugar fram hjá mænuskaðanum og tengja þær ásamt taugabút úr fæti við mænutaglið.
Eftir þetta fór Hrafnhildur í nokkrar læknismeðferðir til Rússlands, Frakklands og Bretlands. Gat hún þá gengið í spelkum fyrir neðan hné í göngugrind. Svo kom að beinþynningunni sem allir lamaðir fá. Hún fór að brotna á fótum og þegar hún hafði brotnað sex sinnum ákvað hún að setjast alfarið í hjólastólinn.