
Manchester United er að undirbúa nýtt tilboð í Patrick Dorgu, vinstri bakvörð Lecce.
Dorgu er tvítgugur vinstri bakvörður sem einnig getur spilað á köntunum. Myndi hann spila í vængbakverði í kerfi Ruben Amorim á Old Trafford.
Fyrsta tilboð United í Danann hljóðaði upp á um 25 milljónir punda, auk 4,2 milljóna síðar meir. Það hefur verið talað um að Lecce vilji um 34-38 milljónir punda.
United er því að undirbúa nýtt og betra tilboð í Dorgu, en sjálfur vill hann ólmur fara á Old Trafford.
🚨🔴 Understand Manchester United are preparing new proposal to Lecce for Patrick Dorgu.
Not expected to reach requested €40m price tag yet but Man United will try to advance after €27m opening proposal turned down.
Dorgu, keen on the move; no issues on potential contract. pic.twitter.com/fTeyY9EPaj
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 23, 2025