Olivier Giroud gæti verið á leið aftur heim til Frakklands strax í sumar.
Framherjinn stóri og stæðilegi er á mála hjá Los Angeles FC í Bandaríkjunum og lék hann með liðinu á HM félagsliða, þar sem það er dottið út í riðlakeppni.
Nú gæti hinn 38 ára gamli Giroud verið á förum eftir aðeins eitt ár í borg englanna, þar sem hann hefur skorað fimm mörk.
Lille vill fá hann til sín og gæti það gerst strax í sumar, eða þá frítt um áramótin þegar samningur hans rennur út.
Giroud lék auðvitað lengi á Englandi með Arsenal og Chelsea við góðan orðstýr, auk þess að hafa verið hjá AC Milan um tíma.