Roma á Ítalíu fylgist grant með stöðu mála hjá Alberti Guðmundssyni og segir í fjölmiðlum í dag að félagið vilji kaupa hann.
Fiorentina hefur til 24 júní til að taka ákvörðun um það hvort félagið festi kaup á Alberti.
Albert er á láni frá Genoa en Fiorentina er með forkaupsrétt fyrir 17 milljónir evra, félagið hefur ekki enn tekið ákvörðun.
Albert átti frábæra tíma hjá Genoa en meiðsli hindruðu aðeins framgöngu hans hjá Fiorentina.
La Gazzetta dello Sport fjallar um málið og segir meiri líkur á því að Fiorentina muni ekki kaupa Albert en Roma sé nú tilbúið að láta til skara skríða.