fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
433Sport

Gummi Ben: „Hann er bara strákrassgat“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 4. mars 2025 20:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ethan Nwaneri er búinn að skora fyrir Arsenal gegn PSV í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Nwaneri, sem er aðeins 17 ára gamall, hefur verið að stíga stærri og stærri skref með Arsenal á þessari leiktíð og er orðinn mikilvægur hlekkur í liðinu.

Hann skoraði sitt áttunda mark á leiktíðinni þegar hann kom Arsenal í 0-2 gegn PSV í leiknum sem nú stendur yfir. Skoraði hann eftir sendingu frá öðru ungstirni Arsenal, Myles Lewis-Skelly.

Staðan er 0-2 þegar um hálftími er búinn af leiknum, en hér að neðan má sjá flott mark Nwaneri.

„Þvílík afgreiðsla hjá stráknum. Það er það sem hann er, bara strákrassgat,“ sagði Guðmundur Benediktsson í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um mark Nwaneri, en hann hrósaði kappanum í hástert í kjölfarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

PSG kannar stöðuna á Erling Haaland

PSG kannar stöðuna á Erling Haaland
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir ekki boðlegt að Norðmenn bjóði upp á þetta – „Ég verð að vera heiðarlegur með það“

Segir ekki boðlegt að Norðmenn bjóði upp á þetta – „Ég verð að vera heiðarlegur með það“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Telja að tíminn leiði í ljós að kaupin á Eze hafi verið þess virði

Telja að tíminn leiði í ljós að kaupin á Eze hafi verið þess virði
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Furðuleg staða komin upp – Vilja selja lykilmann sinn sem neitar að fara

Furðuleg staða komin upp – Vilja selja lykilmann sinn sem neitar að fara