Jesse Lingard spilaði í gær sinn fyrsta keppnisleik fyrir lið Seoul í Suður Kóreu er liðið mætti Gwangju FC.
Þessi leikur tapaðist 2-0 en Lingard kom inná sem varamaður er 13 mínútur voru eftir í stöðunni 1-0.
Englendingurinn sýndi lítið sem ekkert eftir innkomuna og fékk gult spjald á 95. mínútu fyrir annað mark heimamanna.
Það var baulað hressilega á Lingard er hann steig inn á völlinn en um er að ræða fyrrum enskan landsliðsmann og leikmann Manchester United.
Atvikið má sjá hér.
Jesse Lingard makes his K-League Debut 😭🇰🇷 pic.twitter.com/LPGUvO0fST
— Cho 🇰🇷 (@thfc_cho) March 2, 2024