fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
433Sport

Konan kærir niðurfellingu en Albert verður ekki tekinn úr landsliðinu – Vill afsökunarbeiðni eftir ummæli Hareide

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. mars 2024 11:02

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konan sem kærði Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot síðasta sumar hefur kært niðurfellingu málsins til héraðssaksóknara. Frá þessu er sagt á RÚV.is

Þar segir einnig að Albert verði ekki tekinn úr íslenska landsliðshópnum sem nú er í verkefni. „Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, segir ákvörðun um að kæra niðurfellingu málsins ekki hafa áhrif á stöðu Alberts í landsliðinu. Verkefnið var þegar hafið,“ segir í frétt RÚV.

„Það var ákveðið að þjálfarinn mátti velja hann í landsliðið af því þetta var fellt niður. En við teljum að við viljum láta hann klára þetta verkefni. Stjórn ákvað það að landsliðsverkefnið telst vera hafið, leikmannahópurinn var opinberaður og Albert mun klára þetta verkefni núna,“ segir Þorvaldur við RÚV.

„Það sem stjórn KSÍ hafði að leiðarljósi voru reglur sem voru ekki alveg nógu skýrar. Við vildum gera þær skýrari, það er að segja reglur varðandi ákæruferlið. Stjórnin tók það til skoðunar á síðasta fundi að Albert muni klára þetta verkefni, og síðan munum við skoða út frá því.

Albert hefur verið frábær með Genoa á Ítalíu í vetur en hann hefur ekki spilað með landsliðinu frá því að málið kom upp, ákæruvaldið felldi málið niður fyrr á þessu ári en þeirri ákvörðun hefur nú verið áfrýjað.

Í frétt RÚV segir lögmaður konunnar að KSÍ skuldi henni afsökunarbeiðni vegna ummæla sem Age Hareide, landsliðsþjálfari, lét falla á dögunum þar sem hann sagði að það yrði mikið áfall fyrir landsliðið ef Albert yrði ekki með gegn Ísrael á fimmtudag í leik um laust sæti á EM.

„Það eru reglur í sambandinu sem ég verð að fylgja. Það var synd fyrir Ísland og Albert,“ sagði Hareide en Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður konunnar, taldi orð norska þjálfarans verulega ósmekkleg og í raun siðferðislega ámæliverð. Hann væri að egna þjóðina gegn umbjóðenda hennar sem væri að fara lögformlegar leiðir til að ná fram réttlæti vegna misbeitingar sem hún varð fyrir.

„Ég hef verið í sambandi við Albert allan tímann til að missa hann ekki alveg úr landsliðinu. Hann er mjög gíraður að koma inn og standa sig vel fyrir okkur,“ sagði Hareide á fréttamannafundinum á föstudag

„Það eru reglur hjá sambandinu og ég þarf að fylgja þeim reglum. Auðvitað væri það áfall fyrir landsliðið og Albert ef það myndi gerast. Við verðum að sjá hvað gerist,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Áfall fyrir Chelsea – Fer í aðgerð og spilar ekki meira

Áfall fyrir Chelsea – Fer í aðgerð og spilar ekki meira
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
433Sport
Í gær

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
433Sport
Í gær

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið