fbpx
Laugardagur 07.febrúar 2026
433Sport

Valur staðfestir kaup á Skoglund

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 12. ágúst 2024 22:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnufélagið Valur hefur keypt hinn 27 ára gamla Albin Skoglund frá sænska B-deildarfélaginu Utsiktens BK og er hann þegar kominn með leikheimild með Valsmönnum. Albin gerir samning við Val út tímabilið 2026 en hann hefur leikið yfir 100 leiki í næst efstu deild í Svíþjóð og á að baki nokkra unglingalandsleiki.

Albin er uppalinn í Hacken en hefur einnig leikið fyrir Örgryte, IK Oddevold og Ljungskilde SK í heimalandinu.

Albin er mættur til landsins og mun mæta á sína fyrstu æfingu með Val á morgun og verður leikfær í stórleiknum gegn Breiðablik á fimmtudag.

„Albin Skoglund er að koma úr liði í sænsku B-deildinni sem er deild sem ég persónulega þekki mjög vel enda þjálfaði ég þar og Albin er hörku leikmaður. Ég myndi lýsa honum sem sóknarsinnuðum leikmanni sem getur spilað bæði inni á miðjunni en líka á kantinum. Albin er kraftmikill, tæknilega góður og með mikla hlaupagetu. Hann hefur spilað yfir 100 leiki í sænsku B-deildinni sem segir margt um hæfileika hans. Ég er mjög ánægður með að hafa náð að semja við hann og er þess fullviss að hann muni styrkja okkur í komandi baráttu,“ segir Túfa þjálfari Vals.

Albin sjálfur er spenntur fyrir komandi baráttu með Val. „Valur er með hörku leikmannahóp og ég hlakka til að takast á við nýja áskorun. Ég hef alltaf spilað í Svíþjóð og það er mjög spennandi að fá að máta sig við deildina hér á Íslandi sem er mjög öflug. Það verður gaman að spila með leikmönnum eins og Gylfa Sigurðssyni, Aroni Jóhannssyni og Hólmari sem ég þekki til. Ég mun gera mitt besta til þess að Valur nái þeim árangri sem ég veit að félagið stefnir að,“ segir Albin Skoglund.

„Við höfum misst tvo öfluga leikmann úr leikmannahópi okkar núna í glugganum þá Adam Ægi Pálsson sem er að byrja af krafti með Perugia á Ítalíu og svo Guðmund Andra Tryggvason sem við seldum í KR. Við viljum nota tækifærið og þakka Guðmundi Andra fyrir framlag hans til Vals og óskum honum alls hins besta í vesturbænum. Þá höfum við kallað Orra Hrafn Kjartansson til baka úr láni frá Fylki auk þess sem við erum að vinna að því að skoða fleiri möguleika,“ segir Björn Steinar Jónsson varaformaður knattspyrnudeildar Vals.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mættu með „blackface“ til að fagna Heimsmeistaranum – Ekki talið kynþáttaníð í Tyrklandi

Mættu með „blackface“ til að fagna Heimsmeistaranum – Ekki talið kynþáttaníð í Tyrklandi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Slot fagnar kaupunum og segir Liverpool byggja upp til framtíðar

Slot fagnar kaupunum og segir Liverpool byggja upp til framtíðar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valdimar sagður á leið til Svíþjóðar – Yrði mikil blóðtaka fyrir Íslandsmeistarana

Valdimar sagður á leið til Svíþjóðar – Yrði mikil blóðtaka fyrir Íslandsmeistarana
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Viðurkennir að stressið í stuðningsmönnum Arsenal smitist stundum í leikmenn

Viðurkennir að stressið í stuðningsmönnum Arsenal smitist stundum í leikmenn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjúkraþjálfari sendur í leyfi – Bókaði ítrekað hótelherbergi fyrir aðra menn svo þeir gætu haldið framhjá eiginkonum sínum

Sjúkraþjálfari sendur í leyfi – Bókaði ítrekað hótelherbergi fyrir aðra menn svo þeir gætu haldið framhjá eiginkonum sínum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Carrick breytir reglu sem Ten Hag og Amorim voru báðir með

Carrick breytir reglu sem Ten Hag og Amorim voru báðir með
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Kári feginn því í dag að fólk í Laugardalnum vildi ekki fá hann til starfa – Hefði ekki neinn áhuga á starfinu í dag

Kári feginn því í dag að fólk í Laugardalnum vildi ekki fá hann til starfa – Hefði ekki neinn áhuga á starfinu í dag