„Það eru alvarleg peningavandræði á Fjölni,“ segir Hjövar Hafliðason stjórnandi Dr. Football en þær sögusagnir hafa verið á kreiki að félagið sé á barmi gjaldþrots.
Reksturinn í Grafarvogi hefur verið gríðarlega erfiður þvert á deildir. Sem dæmi var 45 milljóna króna tap á knattspyrnudeild félagsins í fyrra.
Þá hefur félagið ákveðið að senda ekki lið til leiks í efstu deild kvenna í körfubolta á næsta ári, sögur eru á kreiki að karlalið félagsins í handbolta muni afþakka sæti í efstu deild.
„Af því að það eru nýjar fréttir þegar við erum að taka upp, að það var ákveðið að draga kvennaliðið úr Subway deildinin í körfunni. Þetta eru gríðarlega leiðinleg tíðindi,“ sagði Gunnar Birgisson, fyrrum starfsmaður Landans á RÚV.
„Það er augljóst að það sé eitthvað að, þetta virðist ná yfir allar deildir. Það er verið tala um gjaldþrot, þetta er lýðheilsumál,“ sagði Gunnar um þær kjaftasögur að félagið gæti hreinlega orðið gjaldþrota.
Hjörvar Hafliðason ólst upp hjá ÍK í Kópavogi en félagið varð gjaldþrota. „Björninn, er það ekki íshokkílið. Núna er bara knattspyrnudeild Bjarnarsins ef Fjölnir fer á hausinn.,“ sagði Hjörvar en vonar að félagið bjargi sér.
„Vonandi fer þetta á farsælan hátt, maður kynntist þessu sem ÍK-ingur.“