Ajax er komið áfram í næstu umferð Sambandsadeildarinnar eftir leik við norska félagið Bodo Glimt í kvöld.
Leiknum lauk með 2-1 sigri Ajax í Noregi og hefur liðið betur samanlagt 4-3 úr tveimur viðureignum.
Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði með Ajax í kvöld en var tekinn af velli á 83. mínútu.,
Það þurfti að framlengja leik kvöldsins þar sem Ajax skoraði eina markið og tryggði sér áframhaldandi sæti.
Úrslitin eru þó ekki sanngjörn en Bodo/Glimt var miklu sterkari aðilinn í kvöld og var óheppið að komast ekki áfram.
Dinamo Zagreb sló Real Betis óvænt úr leik eftir 1-1 jafntefli en þeir króatísku unnu fyrri leikinn 1-0.
Royale Union frá Belgíu er þá að gera frábæra hluti en liðið vann Frankfurt 2-1 á útivelli og fer áfram.
Hér má sjá öll úrslit kvöldsins.
Europa Conference League Knockout Round Playoffs Results! pic.twitter.com/Yh51490IdY
— Kingsley Emelonye (@Kingsleyeme) February 22, 2024