Jessica Goicoechea, fyrirsæta birtir myndir á Instagram þar sem hún er í gegnsæjum bol. Hafa þessar myndir sett allt á hliðina.
Ensk blöð segja að Goicoechea sé fegursta kona í heimi og fjalla ítrekað um hana.
Goicoechea er vel þekkt á meðal knattspyrnuaðdáenda en hún er fyrrum kærasta varnarmannsins Marc Bartra sem gerði garðinn frægan með Barcelona.
Bartra hefur á ferli sínum spilað fyrir Borussia Dortmund, Real Betis og Trabzonspor, auk Börsunga.
Goicoechea er afar vinsæl á samfélagsmiðlum og birtir reglulega djarfar myndir sem slá í gegn. Hún hefur af mörgum verið sögð fallegasta kona heims.
Á þeirri nýjustu er hún ber að ofan en bresk götublöð tala um að með þessu taki hún sénsinn á að Instagram reikningi hennar verði lokað.