fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Neymar fór á Instagram og tjáði sig eftir áfall dagsins

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 6. mars 2023 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ljóst að Neymar verður ekki meira með Paris Saint-Germain á þessari leiktíð vegna meiðsla. Þetta kom í ljós í dag og hefur stjarnan nú tjáð sig.

Neymar meiddist á ökkla á dögunum í sigri PSG á Lille og hefur verið frá undanfarna tvo leiki.

Nú er ljóst að meiðslin eru alvarleg og þarf Neymar að fara í aðgerð. Hún fer fram í Doha á næstu dögum. Neymar mun svo ekki æfa með PSG í 3-4 mánuði í kjölfarið.

„Ég mun koma sterkari til baka,“ segir Neymar með mynd sem hann birti af sér á Instagram fyrir stuttu.

PSG mætir Bayern á útivelli í seinni leik liðanna í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. Bayern leiðir 1-0 eftir fyrri leikinn í París.  Ljóst er að franska liðið verður án Neymar í þeim leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona