fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
433Sport

Til í að fórna fleiri tugum milljóna á viku fyrir að fá að fara

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 28. júlí 2022 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daily Mail heldur því fram að Cristiano Ronaldo hafi beðið um að fá samningi sínum við Manchester United rift.

Ronaldo hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Hann vill komast frá Man Utd. Portúgalinn sneri aftur til félagsins í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf það fyrir Real Madrid. Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en Man Utd hafnaði hins vegar í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Ronaldo fór ekki með Man Utd í æfingaferð til Asíu á dögunum. Sagt er að það sé af fjölskylduástæðum, þó það megi draga það í efa í ljósi sögusagna um framtíð leikmannsins.

Portúgalinn vill núna einfaldlega losna undan samningi hjá Man Utd. Hann þénar hátt í 500 þúsund pund á viku. Hann er tilbúinn að fórna því til að komast í lið sem spilar í Meistaradeild Evrópu á komandi leiktíð.

Sagt var frá því á dögunum að Man Utd vildi bjóða kappanum tveggja ára samning og lána hann í eitt ár, svo hann geti spilað í Meistaradeildinni. Ronaldo hefur aldrei leikið í Evrópudeildinni, keppninni sem Man Utd mun leika í á næsta tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kennir leikmönnum Liverpool um erfiða byrjun Florian Wirtz

Kennir leikmönnum Liverpool um erfiða byrjun Florian Wirtz
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ósætti á bak við tjöldin – Gæti fengið sparkið fljótlega

Ósætti á bak við tjöldin – Gæti fengið sparkið fljótlega
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Robertson opnar sig um hugsanleg endalok hjá Liverpool

Robertson opnar sig um hugsanleg endalok hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal biðlar til ensku úrvalsdeildarinnar

Arsenal biðlar til ensku úrvalsdeildarinnar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Valtý heitt í hamsi og spyr hvort Íslendingar telji sig öðrum fremri – „Maður er búinn að heyra þessa skýringu allt of oft“

Valtý heitt í hamsi og spyr hvort Íslendingar telji sig öðrum fremri – „Maður er búinn að heyra þessa skýringu allt of oft“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ummæli hans um eiginkonu vinar síns rötuðu upp á yfirborðið – „Ég vissi af þessu“

Ummæli hans um eiginkonu vinar síns rötuðu upp á yfirborðið – „Ég vissi af þessu“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

McTominay fundaði með yfirmönnunum og bað um leikmann Manchester United

McTominay fundaði með yfirmönnunum og bað um leikmann Manchester United
433Sport
Í gær

Er þetta arftaki Salah á Anfield?

Er þetta arftaki Salah á Anfield?
433Sport
Í gær

Staðfesta sorglegt andlát – Var þekkt nafn á svæðinu

Staðfesta sorglegt andlát – Var þekkt nafn á svæðinu